Ragnhildur Geirsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Promens hf. frá 1. janúar 2006 segir í tilkynningu félagsins. Ragnhildur starfaði hjá FL Group frá árinu 1999, sem framkvæmdastjóri rekstrarstýringar frá 2003 og sem forstjóri félagsins á árinu 2005. Ragnhildur Geirsdóttir er með M.S. gráðu í iðnaðarverkfræði og viðskiptafræði frá University of Wisconsin-Madison og C.S. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands.

Faðir Ragnhildar, Geir A. Gunnlaugsson, sem hefur verið forstjóri Promens hf. frá stofnun þess verður starfandi stjórnarformaður félagsins og mun hann einbeita sér að enn frekari ytri vexti fyrirtækisins og stefnumörkun þess.

Promens hf., sem er að fullu í eigu Atorku Group hf., er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á hverfisteyptum vörum úr plasti og er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum. Félagið veltir um 10 milljörðum króna, það starfrækir 20 verksmiðjur í 12 löndum og eru starfsmenn félagsins um 1.300. Helstu vörumerki félagsins eru Bonar Plastics og Sæplast.

"Promens hefur verið í mjög örum vexti og er það markmið okkar að stækka félagið enn frekar og auka jafnframt arðsemi þess. Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Ragnhildi til starfa hjá félaginu", segir Magnús Jónsson forstjóri Atorku Group hf. ?Promens er mjög áhugavert fyrirtæki í örum vexti og hlakka ég til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu þess," segir Ragnhildur Geirsdóttir í tilkynningunni..