Í ræðu sinni á alþjóðlegri sjávarútvegsráðstefnu sem hófst í Lilleström í Noregi í dag fjallaði Einar Kristinn Guðfinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrra, um stöðu helstu hvítfiskstofna við Ísland.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að ráðherra hafi gagnrýnt „óþolandi rangfærslur þekktra umhverfissamtaka, sem láti einskis ófreistað til að koma málstað sínum á framfæri.“

Alls konar rugl og rangar fullyrðingar

Einar Kristinn sagði meðal annars:

„Á undanförnum árum höfum við Íslendingar, bæði stjórnvöld og aðrir sem hagsmuna eiga að gæta, orðið að verja vaxandi tíma og orku í að útskýra sjávarútvegsstefnu okkar og draga fram að hún er byggð á hugmyndafræðinni um sjálfbæra nýtingu. Þetta hefur meðal annars helgast af því að í umræðunni veður uppi alls konar rugl og rangar fullyrðingar. Þekkt samtök hafa haldið fram hreinum rangfærslum sem ekki hefur reynst auðvelt að leiðrétta. Sem dæmi um þetta má nefna hin þekktu samtök World Wildlife Fund, WWF, sem meðal annars halda því fram á sumum vefsíðna sinna og víðar, að þorskur sé í útrýmingarhættu. Líkt og að í heiminum sé einn fiskstofn, sem þorskur heitir, og lúti sams konar veiðistjórn um allan heim.

Fyrir ábyrga fiskveiðiþjóð er auðvitað algjörlega óþolandi að þurfa að sitja undir slíkum og þvílíkum rangfærslum, sem skaða orðspor okkar og valda okkur búsifjum á mörkuðum okkar. Má það telja undarlegt að samtök sem vilja láta taka sig alvarlega skuli haga sér með þessum hætti.“

Íslendingar tilbúnir að taka erfiðar ákvarðanir

Þá kemur einnig fram að ráðherra sagði Íslendinga hafa sýnt að þeir séu reiðubúnir að taka erfiðar ákvarðanir sem valda tímabundnum efnahagslegum erfiðleikum, tekjutapi þjóðarbúsins og þrengingum á mörkuðum til skamms tíma, ef það megi verða til þess að byggja upp fiskistofnana.

„Sem ábyrg nýtingarþjóð förum við bara fram á eitt, - það er að vera dæmd af verkum okkar og ákvörðunum. Íslendingar njóta sem betur fer álits fyrir að vinna að ábyrgð í sjávarútvegsmálum og það orðspor viljum við varðveita. Við teljum okkur hafa sýnt það að við stöndum undir þeirri viðurkenningu sem fiskurinn okkar nýtur á alþjóðavettvangi. Því er algjörlega ótækt að sætta sig við að óvandaður málflutningur einstakra aðila, sem hirða ekki um að leita sannleikans, skuli enn vaða gagnrýnislaust uppi,“ sagði Einar Kristinn í ræðu sinni.

Fiskistofnar í góðu ástandi

Þá fór ráðherra yfir stöðu þorsks, ýsu, ufsa og karfa á Íslandsmiðum, almenn viðhorf til nýtingar fiskistofna og hvað til þurfi svo vel gangi. Sjálfbær nýting auðlindarinnar sé grundvallaratriði og virkt samstarf vísindamanna, stjórnvalda og atvinnugreinarinnar afar mikilvægt. Þrátt fyrir allt sem á hafi dunið sé staðan fiskistofna við Ísland ívið betri en víðast hvar annars staðar.

Á sjötta hundrað sérfræðinga í sjávarútvegi frá 25 löndum sækja ráðstefnuna.