Þráinn Bertelsson alþingismaður er genginn í Vinstrihreyfinguna – grænt framboð (VG) og þingflokk hennar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG.

Þráinn var kjörinn á Alþingi vorið 2009 fyrir Borgarahreyfinguna en hefur verið þingmaður utan flokka síðan í ágúst 2009.