Þráinn Vigfússon hefur verið ráðinn fjármálastjóri Iceland Travel og VITA.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Travel en þar segir að Þráinn hefur langa og víðtæka reynslu af störfum innan ferðaþjónustunnar, meðal annars sem fjármálastjóri og síðar framkvæmdastjóri hjá Kynnisferðum.

Þráinn hefur gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum á sviði ferðamála, m.a. hjá Samtökum ferðaþjónustunnar og Samtökum atvinnulífsins, auk þess sem hann hefur setið í stjórn Íshesta, Sæferða og SBK.

Þráinn er 41 árs viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Svövu Liv Edgarsdóttur og eiga þau þrjú börn.