Rakel Óttarsdóttir
Rakel Óttarsdóttir

Rakel Óttarsdóttir er nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka. Rakel tekur við starfi framkvæmdastjóra þróunar- og markaðssviðs bankans en það skiptist í markaðsdeild, netviðskipti, árangurs- og verkefnastjórnun og þróun.

Rakel hefur starfað hjá bankanum og forverum hans síðan árið 2005 er hún gegndi starfi viðskiptastjóra á upplýsinga- og tæknisviði. Á síðasta ári tók Rakel við starfi forstöðumanns árangurs- og verkefnastjórnunar á þróunar- og markaðssviði. Áður starfaði hún sem rekstrar- og þróunarstjóri hjá TM Software.

Rakel er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA próf frá Duke University í Norður Karólínu í Bandaríkjunum.