Rakel Sölvadóttir hjá Skema er komin í úrslit í keppni þar sem þeir sem vinna munu ganga á Kilimanjaro með helstu fjárfestum Bandaríkjanna. Keppnin er ætluð nýsköpunarfyrirtækjum sem eru að reyna að koma sér á framfæri.

Samkvæmt upplýsingum VB.is sóttu um 2.100 manns um að fá að taka þátt í keppninni. Topp 50 úr almenningskosningu fara svo fyrir dómnefnd og 3-5 verða valdir úr hópnum. Rakel er enn sem komið er í 6 sæti en hana vantar herslumuninn til að komast á toppinn.

Lesendur VB.is geta kosið Rakel áfram í keppninni með því að smella hér.