Rakel Þorbergsdóttir hefur verið ráðin fréttastjóri Ríkisútvarpsins. Þetta var tilkynnt nú fyrir stundu.

Skarphéðinn Guðmundsson verður áfram dagskrárstjóri sjónvarps. Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rásar 1 og Frank Þórir Hall verður dagskrárstjóri Rásar 2.

Andrea Róbertsdóttir verður mannauðsstjóri Ríkisútvarpsins, Margrét Magnúsdóttir verður skrifstofustjóri, Hildur Harðardóttir verður framkvæmdastjóri samskipta- þróunar og mannauðssviðs og Anna Bjarney Sigurðardóttir verður framkvæmdastjóri rekstrar- fjármála- og tækni.

Þá verður Ingólfur Bjarni Sigfússon áfram vef- og nýmiðlastjóri.