Verðmat greiningardeildar Glitnis á Landsbankanum hækkar í 36 krónur á hlut úr 33 krónum á hlut, samkvæmt verðmati frá lok janúar. Sex mánaða markgengið er 39 krónur á hlut.

?Verðmatsgengið er 1,5% undir gengi á markaði (36,5). Ráðlegging okkar til fjárfesta er að halda bréfum í félaginu horft til langs tíma,? segir greiningardeildin.

Hún segir helstu forsendur til hækkunar verðmatsgengis eru að gert er ráð fyrir að yfirtaka Bridgewell gangi eftir og gert er ráð fyrir lækkun eiginfjárbindingar frá og með árinu 2012.