Til stendur að framleiða sjónvarpsþætti sem byggja á myndunum um Rambo. Viðræður eru í gangi við Sylvester Stallone um að hann komi að verkefninu. Frá þessu greinir Hollywood Reporter . Þar kemur fram að Stallone myndi koma að framleiðslu þáttanna og ekki er útilokað að hann tæki líka að sér hlutverk Rambos.

Það eru kvikmyndaframleiðslufyrirtækin Nu Image og Entertainment One sem munu framleiða þættina. Fyrirhugað er að þeir verði sýndir í Bandaríkjunum og einnig seldir til annarra ríkja.