Rammagerðin hefur opnað nýja verslun í Kringlunni. Verslunin er sú fyrsta í Kringlunni sem býður eingöngu upp á íslenska gjafavöru. Í versluninni er að finna vörur frá tæplega 50 íslenskum hönnuðum og vörumerkjum. Greint er frá opnuninni í fréttatilkynningu.

Rammagerðin var stofnuð árið 1940 og rekur í dag fimm verslanir sem bjóða íslenska hönnun og handverk. Fischer Ilmhús, Bjarni Viðar, Scintilla, Havarí, Bahns, Milla Snorrason og Ragna Ragnarsdóttir eru meðal þeirra hönnuða og vörumerkja sem er að finna í nýju verslun Rammagerðarinnar í Kringlunni.

Í tilkynningunni segir að Auður Gná Ingvarsdóttir, listrænn stjórnandi Rammagerðarinnar, hafi haft veg og vanda af því að velja inn réttu vörurnar og sömuleiðis séð um uppsetningu og framstillingar.

Þá segir Bjarney Harðardóttir, eigandi Rammagerðarinnar, að það séu spennandi tímar framundan í skapandi greinum og eftirspurn eftir íslenskri hönnun og handverki sé stöðugt að aukast. Nýja verslunin í Kringlunni sé komin til að mæta þessum aukna áhuga á íslenskri hönnun.