Fulltrúar Mjólkursamsölunnar (MS) og Matís undirrituðu í dag fimm ára samstarfssamning um rannsóknir á skyrgerlum og mysu. Jón Axel Pétursson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs MS, segir fyrirtækið mjög spennt yfir þessu samstarfi.

„Í skyrinu og íslenska skyrgerlinum leynast mikil verðmæti eins og við höfum við séð mjög greinilega út frá jákvæðri söluþróun okkar á skyri á Norðurlöndum, en salan á síðasta ári þar jókst um 85% og er nú í heildina orðin um og yfir 13.000 tonn,“ segir Jón Axel.

Hann segir fulla ástæðu til að rannsaka frekar íslenska skyrgerilinn og sérstöðu hans og hvernig nýta megi hann til að gera skyrið að enn verðmætari útflutningsvöru en það er í dag.

„Mikil þekking er innan Matís á hvers kyns örverum og mun sú þekking nýtast vel til rannsóknar á skyri og skyrgerlum. Mysan er ekki minna áhugavert hráefni sem býður upp á mikla möguleika til aukinnar verðmætasköpunar. Með samstarfi Matís og MS skapast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar,“ segir Oddur Már Gunnarsson, sviðsstjóri viðskiptaþróunar Matíss.