Undirritað hefur verið samkomulag milli ráðgjafafyrirtækisins Gekon og Arion banka þess efnis að bankinn verði aðalbakhjarl rannsóknar á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira undir forystu Dr. Michael Porter prófessors við Harvard viðskiptaháskólann. Í fréttatilkynningu frá Arion segir að rannsóknin verði kynnt á ráðstefnu í Háskólabíói 1. nóvember næstkomandi.
Á ráðstefnunni mun Michael Porter kynna rannsókn sína á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira og með hvaða hætti best sé að haga uppbyggingu íslensks jarðvarmaklasa. Michael Porter hefur að því er fram kemur sýnt íslenskum orkugeira mikinn áhuga á undanförnum árum, ekki síst jarðvarmavinnslu.
„Michael Porter, sem er einn helsti fræðimaður heims á sviði stefnumótunar og samkeppnishæfni þjóða, er höfundur hinnar svokölluðu klasakenningar (e. Cluster policy). Kenningin tekur til myndunar sérhæfðra klasa, svo sem á sviði hátækni, sjávarútvegs, iðnaðar eða jarðvarma, sem gera samfélögum kleift að rækta styrkleika sína með skilvirkum og árangursríkum hætti með það að markmiði að auka varanlega hagsæld og velferð,“ segir í tilkynningunni.
Auk Porters mun Dr. Christian Ketels, einnig frá Harvard viðskiptaháskólanum, gera grein fyrir einkennum hins íslenska jarðvarmaklasa og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra mun taka til máls um hlutverk stjórnvalda. Fjöldi annarra sérfræðina, innlendra sem erlendra, mun taka til máls. Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, er verndari ráðstefnunnar.