Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að ekki væri ástæða til þess að verða við kröfum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, um að rannsókn á hendur honum yrði hætt. Sérstakur saksóknari rannsakar nú, eftir að FME vísaði máli Baldurs þangað, hvort Baldur hafi búið yfir innherjaupplýsingum þegar hann seldi hlutabréf fyrir 192 milljónir í Landsbankanum í 17. og 18. september 2008. Landsbankinn féll þremur vikum síðar.
Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er rannsókn á máli Baldurs langt komin.