Íslenskir bankar og eftirlitsstofnanir hafa ákveðið að bregðast við því sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri kallaði atlögu að íslenskum bönkum og íslenska ríkinu í ræðu sinni á aðalfundi bankans á föstudaginn var.

Að sögn Jónasar Friðriks Jónssonar, forstjóra Fjármála- eftirlitsins, hefur eftirlitið ákveðið að kalla eftir upplýsingum um hvort verið sé að dreifa með skipulegum hætti neikvæðum orðrómi um íslenska fjármálakerfið til að hagnast á því. Aðspurður sagði Jónas að eftirlitið hefði ákveðið að skoða þetta með víðum hætti og því ekki bundið sig við aðferðina sem slíka.

Vegna ásakana um að þetta framferði hafi hafist í kjölfar heimsóknar nokkurra starfsmanna bandaríska bankans Bear Stearns, staðfesti Jónas að þeir hefðu hitt menn á vegum bankans í janúar síðastliðnum. Hann sagðist þó ekkert geta sagt til um á þessari stundu hvort rannsóknin nú tengdist þeirri heimsókn. Undanfarna viku hefur írska fjármálaeftirlitið unnið að skoðun á hliðstæðum tengslum skortsölu og neikvæðra frétta. Jónas sagðist ekki þekkja þeirra rannsókn í smáatriðum en sagði að hún virtist vera með svipuðum hætti.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum. Þeir áskrifendur sem ekki hafa sótt um aðgangsorð til að lesa blaðið á vefnum geta gert það hér .