Norræna ráðherranefndin um sjávarútveg og fiskeldi ákvað nú í janúar að veita styrk til rannsóknar á launakerfi í sjávarútvegi á Norðurlöndunum og áhrifum þess á stjórnkerfi fiskveiða og sjálfbærni.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði grein fyrir þessu verkefni á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ráðuneytið hafi í haust, að frumkvæði Kristjáns, tekið til umræðu á vettvangi norræns samstarfs hvort gera ætti samanburð á kjörum og launakerfum sjómanna í hinum norrænu ríkjum.

Þetta er sagt hafa verið sérstaklega gert með tilliti til umfjöllunar undanfarið um verðmun á uppsjávarafla hér á landi og í Noregi.

„Í verkefninu verður leitast við að greina og lýsa launakerfi í sjávarútvegi í norrænu ríkjunum, þróun þess og skiptingu fiskveiðirentu milli sjómanna, eigenda skipa og handhafa aflakvóta,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. „Horft er til þess að sú þekking sem verði til með verkefninu geti nýst við töku ákvarðana á sviði fiskveiðistjórnar í krafti bestu þekkingar um hagræna þætti og sjálfbærni.“

Í tilkynningunni er haft eftir Kristjáni Þór að hann hafi „verið þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að leiða í ljós skýringar á þeim verðmun sem hefur verið í umræðunni enda hefur sú umræða einkennst af tortryggni um kjör sjómanna. Það er mikill styrkur fyrir þetta verkefni að öll norrænu ríkin koma að því og því verður hægt að bera saman upplýsingar milli landa. Það er fyrirhugað að niðurstöður liggi fyrir í haust og vonandi munum við í kjölfarið hafa betri mynd af þeim mun sem kann að vera milli landa.“

Norræna hugveitan um fiskveiðar, Nordic Marine Think Tank, ber ábyrgð á verkefninu en verkefnisstjóri er Carl-Christian Schmidt, ráðgjafi og fv. skrifstofustjóri sjávarútvegs- og fiskeldisskrifstofu OECD. Þátttakendur í verkefninu er fræðimenn í Danmörku, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og Noregi.

Stefnt er að því að niðurstöður verkefnisins verði kynntar á norrænni fiskimálaráðstefnu í Færeyjum næsta haust.