Þau mál sem embætti sérstaks saksóknara rannsakar eru flókin, tímafrek og mannfrek, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, þegar hann er spurður hvers vegna engin mál hafi enn verið afgreidd frá embættinu.
Nú er bráðum ár liðið frá bankahruninu og enn eru ekki komnar niðurstöður í mörgum þeim málum sem til rannsóknar hafa verið og tengjast hruninu.
Ólafur Þór bendir þó á, í samtali við Viðskiptablaðið, að embættið hafi ekki hafið störf fyrr en 1. febrúar. Starfsmenn hafi í fyrstu ekki verið margir en þeim hafi síðan verið fjölgað og séu nú um fimmtán til sextán.
Stefnt er að því að þrír nýir saksóknarar verði skipaðir frá og með 1. október.
Þegar Ólafur Þór er spurður hvort til standi að ráða enn fleiri svarar hann því til að það fari eftir því hvaða fjárveitingu embættið fái í fjárlagafrumvarpinu.