Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir ástæðu þess að engin efnisleg niðurstaða varð á rannsókn stofnunarinnar á eignartengslum Samherja, Síldarvinnslunnar og Gjögurs hafi verið forgangsröðun vegna anna í öðrum verkefnum.

Þetta kemur fram í Fréttablaðinu , en upphaf málsins má rekja til þess að árið 2013 heimilaði stofnunin Síldarvinnslunni að kaupa útgerðarfyrirtækið Berg-Huginn. Þar sem tveir stærstu eigendurnir í Síldarvinnslunni, Samherji og Gjögur áttu fulltrúa í stjórn Síldarvinnslunnar, án þess að eiga meirihlutann, ákvað Samkeppniseftirlitið á sínum tíma að leggja mat á það hvort Samherji hefði í raun yfirráð yfir Síldarvinnslunni.

Eiga samtals meiri kvóta en einn aðili má ráða yfir

Þar með hefðu félögin átt meiri aflahlutdeild en lög um stjórn fiskveiða heimila, en fyrirtækin þrjú eru keppinautar í skilningi samkeppnislaga. En á sama tíma hafa fyrirtækin þrjú unnið náið saman í útgerð, fiskvinnslu og sölu afurða svo stofnunin taldi óhjákvæmilegt að skoða hvort um samkeppnishamlandi samráð væri um að ræða á milli fyrirtækjanna þriggja.

Nú hefur rannsókninni hins vegar verið hætt, fimm árum seinna, að sögn Páls Gunnars því miklar tafir hefðu verið komnar á rannsóknina og fyrirsjáanlegt að þær yrðu meiri. „Því var ákveðið að ljúka málinu á þessu stigi án efnislegrar niðurstöðu,“ segir Páll Gunnar.

„Ástæðu þessara málalykta má rekja til mikilla anna við rannsókn samrunamála síðustu misseri, en vegna lögbundinna tímafresta í samrunamálum verður eftirlitið ávallt að forgangsraða slíkum málum.“