Rannsókn á viðskiptum stjórnarmanna í SPRON, sem kærð voru af Vilhjálmi Bjarnasyni lektor við Háskóla Íslands, hefur verið hætt með vísan til laga um meðferð sakamála. Kærandi í málinu var Þórarinn V. Þórarinsson hrl. fyrir hönd Vilhjálms, en hún beindist að allri stjórn SPRON og forstjóra. Í stjórninni voru, á þeim tíma þegar viðskiptin áttu sér stað, Erlendur Hjaltason, Hildur Petersen, Jóhann Ásgeir Baldurs, Ari Bergmann Einarsson og Gunnar Þór Gíslason. Guðmundur Hauksson var forstjóri.
Hinn 7. janúar sl. tilkynnti Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari kærðu og kæranda um þá ákvörðun að rannsókn málsins hefði verið hætt.
Málið má rekja til viðskipta með stofnjárbréf sem áttu sér stað á sumarmánuðum ársins 2007, einkum eftir miðjan júlí, og fram í miðjan ágúst. Þá var lokað fyrir viðskipti með stofnfjárbréf þar sem ákveðið var að breyta SPRON í hlutafélag og skrá það á markað.
Meðal þeirra sem seldu stofnfjárbréf voru þrír stjórnarmenn, Hildur Petersen stjórnarformaður, Gunnar Þór Gíslason og Jóhann Ásgeir Baldurs. Viðskipti Jóhanns Ásgeirs Baldurs voru óveruleg og fyrir margfalt minni fjárhæðir en í tilfelli þeirra fyrrnefndu. Mestu munaði um sölu Gunnars Þórs Gíslasonar, en hann seldi bréf fyrir því sem jafngilti um tveggja prósenta hlutar í sjóðnum, fyrir um tvo milljarða króna. Sundagarðar, félag sem hann var í forsvari fyrir, hélt eftir sem áður eftir um þriggja prósenta hlut í sjóðnum.
Auk þessa voru til rannsóknar viðskipti Áslaugar Bjargar Viggósdóttur, eiginkonu Guðmundar, en hún seldi einnig bréf á fyrrnefndu tímabili eins og áður hefur komið fram í Viðskiptablaðinu.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun.
_________________________________________________________________
Meðal annars efnis í blaði morgundagsins er:
-
Cobega Group kaupir Vífilfell
- Atorka tapaði 56 milljörðum á tveimur árum
-
Fá 76% hlut í MP banka fyrir 3 milljarða
- Actavis er og verður íslenskt félag, segir Claudio Albrecht forstjóri Actavis
- Samtök ferðaþjónustunnar reyna að koma tölum um gistirými á hreint
- Riftunarmál þrotabús Milestone
- Endurskoðendur sagðir hafa skort reynslu og þjálfun
- Sjóvá selt að hluta
- FME svarar Sigurði Viðarssyni forstjóra TM
- Sport og peningar: Brassar standa í stórræðum
- Hrafn Jökulsson rabbar um þjóðmál, ásókn í veiðileyfi minnkar ekki, reynsluakstur á Hondu Insight, nýr framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs í nærmynd og margt, margt fleira...