Nýr Landspítali ohf., í samstarfi við Ríkiskaup og Framkvæmdasýslu ríkisins hefur afhent fjórum hönnunarteymum útboðsgögn vegna fullnaðarhönnunar nýs 15 þúsund fermetra rannsóknahúss. Húsið verður með þyrlupalli á þakinu.

Hönnunarteymin fjögur sem stóðust kröfur sem gerðar voru í forvalinu eru:

  • Grænaborg (Arkstudio ehf, Hnit verkfræðistofa, Landmótun, Raftákn, Yrki arkitektar)
  • Mannvit og Arkís arkitektar
  • Corpus3 (Basalt arkitektar, Hornsteinar arkitektar, Lota ehf og VSÓ ráðgjöf)
  • Verkís og TBL

Rannsóknahúsið er hluti af heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut og er áætlað að það verði staðsett vestan megin við svokallaðann Læknagarðinn, þar sem bílastæðin eru nú.

Aðrar byggingar eru meðferðarkjarninn, sem er stærsta byggingin í uppbyggingu Hringbrautarverkefnisins, nýtt sjúkrahótel, sem verður tekið í notkun á árinu og bílastæða-, tækni- og skrifstofuhúss.

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH segir fullnaðarhönnun nýs rannsóknahúss í Hringbrautarverkefninu vera enn einn áfangann í verkáætlunum NLSH. „Nýtt rannsóknahús mun skapa mikið hagræði hjá Landspítalanum vegna sameiningar allrar rannsóknastarfsemi spítalans á einn stað,“ segir Gunnar.

„Þá eru samlegðaráhrif við Háskóla Íslands mikil, en skólinn mun reisa glæsilegt nýtt hús heilbrigðisvísindasviðs sem verður tengt rannsóknahúsinu. Samkvæmt okkar áætlunum mun nýtt rannsóknahús verða tekið í notkun á árinu 2024 í samræmi við fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.“ Opnun tilboða verður hjá Ríkiskaupum þann 11. júní næstkomandi.

Rannsóknahúsið er einn hluti af Hringbrautarverkefninu. Í rannsóknahúsi Nýs Landspítala mun öll rannsóknastarfsemi spítalans sameinast á einn stað. Starfseiningar í rannsóknahúsi verða meinafræði, rannsóknakjarni, klínísk lífefnafræði og blóðmeinafræði, frumuræktunarkjarni, frumumeðhöndlun, erfða – og sameindalæknisfræði, ónæmisfræði, rannsóknastofa í gigtsjúkdómum og sýkla og veirufræði.

Einnig mun starfsemi Blóðbanka flytjast í nýtt rannsóknahús. Rannsóknahúsið tengist meðferðarkjarna og öðrum byggingum spítalans með sérstökum sjálfvirkum flutningskerfum, einnig með tengigöngum og tengibrúum. Á húsinu verður einnig þyrlupallur sem tengdur er meðferðarkjarnanum.