Rannsóknarnefnd Alþingis hefur ákveðið að framlengja skilafrest á athugasemdum tólfmenninganna sem fengu bréf frá nefndinni til 24. febrúar næstkomandi. Nefndin hefur jafnframt ákveðið að þessi framlengdi frestur nái til allra þeirra tólf einstaklinga sem veittur var kostur á að senda nefndinni athugasemdir. Er það vegna þess að umræddir einstaklingar hafa óskað eftir lengri frest.

Eins og fram hefur komið hefur rannsóknarnefnd Alþingis á grundvelli 13. gr. laga nr. 142/2008 veitt tólf einstaklingum tækifæri til að koma á framfæri við nefndina athugasemdum sínum um afmörkuð atriði sem nefndin hefur til athugunar að fjalla um í skýrslu sinni til Alþingis með tilliti til þess hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni.

Hluti þeirra  sem veitt var færi á að koma að slíkum athugasemdum hefur óskað eftir lengri fresti til þess að koma þeim á framfæri við rannsóknarnefndina. Því hefur nefndin ákveðið að framlengja umræddan frest til kl. 17.00 miðvikudaginn 24. febrúar nk. Nefndin hefur jafnframt ákveðið að þessi framlengdi frestur nái til allra þeirra tólf einstaklinga sem veittur var kostur á að senda nefndinni athugasemdir. Það útilokar ekki að þær verði afhentar nefndinni fyrr. Að fengnum þessum athugasemdum mun nefndin fara yfir þær og ljúka vinnslu á skýrslu sinni til Alþingis en tímasetning og framhald á vinnu nefndarinnar að þessu leyti ræðst m.a. af efni þeirra athugasemda sem berast frá viðkomandi einstaklingum segir í frétt á heimasíðu nefndarinnar.