Undirbúningur er hafinn að stofnun og rekstri rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum. Viljayfirlýsing um það var undirrituð í morgun af Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þorsteini Inga Sigfússyni forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Guðrúnu Sævarsdóttur forseta tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Ólafi Pétri Pálssyni deildarforseta iðnaðar, vélaverkfræði og tölvunarfræði Háskóla Íslands og Rannveigu Rist stjórnarformanni Samáls, samtakaálframleiðenda.

Í viljayfirlýsingunni kemur fram að með markvissu samstarfsátaki verða skilgreindar aðgerðir sem ætlað verður að auka verðmætasköpun í greininni og efla undirstöður ál- og efnisiðnaðar. Áliðnaðurinn og tengd starfsemi hefur mikla þýðingu í íslensku efnahagslífi enda hefur útflutningur á áli verið einn stærsti liður í útflutningstekjum landsins. Með samstilltu átaki verður unnið að því að auka samkeppnishæfni áliðnaðarins og tengdra framleiðslu- og þjónustugreina á Íslandi.