Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, fær afhenta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um sparisjóðina á morgun. RÚV greinir frá þessu. Strax á eftir fær  stjórnskipunarnefnd Alþingis afhent eintak og í framhaldinu, eða um klukkan tvö verður haldinn blaðamannafundur í Iðnó þar sem skýrslan verður kynnt. Á föstudag er fyrirhuguð ein umræða um skýrsluna á Alþingi og síðan er þingið komið í páskafrí.

Það hefur tekið langan tíma að vinna skýrsluna en Alþingi samþykkti í júní 2011 tillögu þess efnis að rannsókn færi af stað og nú tveimur og hálfu árið síðar er skýrslan tilbúin.