Stóra Disney Matreiðslubókin hefur velt Rannsóknarskýrslu Alþingis úr sessi sem mest selda bók ársins á Íslandi 2010.  Stóra Disney Matreiðslubókin hefur einnig verið á toppi lista Félags Íslenskra Bókaútgefenda yfir mest seldu bækurnar s.l. fjórar vikur og á toppi barnabókalista Eymundsson.

Bókin er unnin alfarið á Íslandi, af íslenskum matreiðslumönnum, hönnunarfólki og Gassi tók allar myndir í bókinni. Hún er nú uppseld hjá útgefanda.

Fyrirsjáanlegt er að Disney muni gefa bókina út á norðurlöndum og öðrum evrópulöndum á komandi misserum, þar sem vinsældir hennar hafi verið slíkar hér á landi.

Edda útgáfa er Disney á Íslandi og er útgefandi bókarinnar.