Rannsóknarstofa Lýsis er í hópi 84 rannsóknarstofa sem nefndar eru á lista bandarísku samtakanna AOCS (American Oil Chemist Society) en þau hafa borið saman færni um 500 rannsóknastofa á greiningum á ýmis konar olíum og afurðum úr þeim sem ætlaðar eru til manneldis. Á listanum eru tilgreindar þær stofur sem fá viðurkenningu fyrir það starf sem þar er unnið.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Lýsi.