Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, er maður ársins 2008 í íslensku atvinnulífi, að mati dómnefndar Frjálsrar verslunar.

Í tilkynningu kemur fram að Rannveig hlýtur þennan heiður fyrir mikla leiðtogahæfileika, hæfni við rekstur álversins í Straumsvík, farsælan feril, frumkvöðlastarf á sviði menntunar í stóriðju og forystu í málefnum kvenna í atvinnulífinu um langt skeið.

,,Rannveig hefur verið forstjóri álversins í Straumsvík í tólf ár og allan þann tíma hefur fyrirtækið verið rekið með hagnaði. Hún tók sig til síðastliðið vor, þegar henni hætti að lítast á blikuna í efnahagsmálum þjóðarinnar, og greiddi upp allar skuldir álversins. En álverið í Straumsvík er hlutafélag sem greiðir fyrir sínar framkvæmdir sjálft en færir ekki kostnaðinn yfir á móðurfélagið," segir í tilkynningu.

Alcan á Íslandi hf. hefur frá árinu 2007 verið í eigu Rio Tinto sem er stærsti álframleiðandi í heimi.

Rannveig er vélvirki, vélstjóri og vélaverkfræðingur. Hún er brautryðjandi og gerði innrás í karlaveldið þegar hún tók vélstjórapróf 4. stigs frá Vélskóla Íslands og síðar sveinspróf í vélvirkjun og varð þar með vélfræðingur. Þá var hún með fyrstu konum sem varð vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er fyrst kvenna til að gegna forstjórastarfi í stórfyrirtæki á Íslandi.

Þetta ár er sögulegt fyrir áliðnaðinn. Í fyrsta sinn eru áætlaðar útflutningstekjur af áli meiri en af fiski á þessu ári.

,,Margir kynnu að halda að álverið í Straumsvík framleiddi jú bara ál – en það framleiðir 200 vörutegundir af áli og fyrir vikið er framleiðsluferlið í Straumsvík með því flóknasta sem þekkist í álverksmiðjum í heiminum og krefst mikillar skipulagningar," segir í tilkynningu Frjálsrar verslunar.

Rannveig hóf störf hjá álverinu sem yfirmaður öryggis- og gæðamála árið 1990. Hún var ráðin forstjóri árið 1997. Hún er þriðji forstjóri álversins. Hún tók við forstjórastarfinu af Christan Roth en á undan honum var Ragnar Halldórsson forstjóri.

Eiginmaður Rannveigar er Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Börn þeirra eru þrjú; Guðbjörg, María og Hólmfríður Vigdís.

Verðlaunin verða afhent formlega klukkan 16:00 í dag í veislu sem Frjáls verslun heldur Rannveigu til heiðurs á Hótel Sögu.