Ísraelska fjártæknifélagið Rapyd og Arion banki hafa gert samkomulag um kaup Rapyd á Valitor hf. Kaupverð er 100 milljónir bandaríkjadala, um 12,3 milljarðar íslenskra króna. Áætlað er að kaupin klárist í lok árs en gerður er fyrirvari um samþykki eftirlitsaðila. Kaupin eru sögð styrkja vöruframboð Rapyd í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu til kauphallarinnar .
Áhrif viðskiptanna á fjárhag Arion banka verða jákvæð um rúmlega 3,5 milljarða eftir skatta, sem er munurinn á söluverði og bókfærðu virði félagsins að frádregnum sölukostnaði. Þá áætlar bankinn að umfram eigið fé hækki um 8 til 11 milljarða króna.
Kaupverð Rapyd á Valitor er um þrefalt hærra en það sem SaltPay borgaði fyrir 96% hlut í Borgun á síðasta ári en SaltPay borgaði um 4,3 milljarða fyrir Borgun.
„Það hefur verið markmið okkar um nokkurt skeið að finna Valitor nýja eigendur sem henta félaginu vel og teljum við að það hafi tekist með þessum samningum. Rapyd er í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og nýsköpun á sviði greiðslumiðlunar og passa félögin einstaklega vel saman og bæta í raun hvort annað upp. Ég þakka starfsfólki Valitor fyrir frábært samstarf á undanförnum árum og óska þeim velfarnaðar á þeirri spennandi vegferð sem framundan er, nú sem hluti af Rapyd samstæðunni," segir Benedikt Gíslason , bankastjóri Arion banka, í tilkynningunni.
„Ísland hefur í lengri tíma verið í forgrunni hvað varðar notkun á rafrænum greiðslumiðlum og nýsköpun, en hér er mikið af hæfileikaríku fólki og þróaður greiðslumarkaður. Við hyggjumst halda áfram að byggja upp starfsemi hér og halda áfram að fjárfesta á Íslandi. Við erum að gera Ísland að miðstöð greiðslumiðlunar samstæðunnar fyrir Evrópu og stefnum á að verða einn stærsti alþjóðlegi vinnuveitandi landsins," segir Arik Shtilman, forstjóri og stofnandi Rapyd, í tilkynningunni.
Í tilkynningunni segir að „viðskiptavinir Valitor munu ekki verða fyrir neinni röskun á þjónustu vegna kaupanna og eiga brátt að hafa aðgang að greiðsluleiðum og fjártækniþjónustu Rapyd sem ætlar að vinna náið með íslenskum viðskiptavinum í því skyni að greiða þeim leið að næstu kynslóð greiðslulausna og gera þeim þannig kleift að auka viðskipti sín erlendis.“
„Kaup Rapyd á Valitor marka tímamót í langri sögu Valitor og greiðslumiðlunar á Íslandi. Við hjá Valitor erum full tilhlökkunar að vinna með nýju fólki, Arik og starfsfólki Rapyd, við að samþætta starfsemi félaganna og grípa þau tækifæri sem samþættingin felur í sér, bæði fyrir félagið og viðskiptavini þess," segir Herdís Fjeldsted, forstjóri Valitor, í tilkynningunni.