Samkvæmt rekstrarreikningi opinbera hlutafélagsins RARIK var hagnaður á tímabilinu 1.384 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 909 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2018 var 1.711 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar. Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 16% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum hækkuðu um tæp 9%. Hækkun rekstrartekna var meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum, en rekstrargjöld voru heldur hærri.

Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 447 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 252 milljónir króna fyrri hluta ársins 2017. Er það í samræmi við áætlanir.

Áhrif hlutdeildarfélagsins Landsnets voru jákvæð um 373 milljónir króna, samanborið við 257 milljónir króna á fyrri hluta síðasta árs. Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á tímabilinu 1.384 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 2.659 milljónir króna eða 31,83% af veltu tímabilsins, samanborið við 27,5% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 2.696 milljónir króna samanborið við 1.951 milljón króna á sama tímabili árið 2017.

Heildareignir RARIK samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2018 voru 63.939 milljónir króna og heildarskuldir námu 24.978 milljónum króna. Eigið fé var 38.961 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 61%.

Í júnímánuði var farið í skuldabréfaútboð og var tilboðum að upphæð 4.740 milljónum tekið á ávöxtunarkröfunni 2,7%. Fjárfestingar ársins eru áætlaðar um 5.000 milljónir sem er meira en undanfarin ár.

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2018 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma fyrir fjármagnsliði á seinni hluta ársins verði í samræmi við áætlanir. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða verður heildarafkoma fyrirtækisins því jákvæð á árinu 2018.

RARIK ohf er hlutafélag í eigu ríkisins sem var stofnað 1. ágúst 2006 og tók þá við rekstri Rafmagnsveitna ríkisins sem hófu starfsemi sína þann 1. janúar árið 1947.