Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkaði um 10% að jafnaði hinn 1. janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í 25,5%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá RARIK en þar segir að hækkun RARIK sé mismunandi eftir verðskrárliðum og er hækkunin heldur minni hjá stærri notendum en hjá smærri notendum.

„Hækkunin er fyrst og fremst tilkomin vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt að þrátt fyrir þessa hækkun verðskrár fullnýti RARIK sér ekki þær tekjuheimildir sem fyrirtækið hefur skv. lögum. Þá verði hækkunin meiri hjá þeim viðskiptavinum sem njóta niðurgreiðslna úr ríkissjóði, þar sem niðurgreiðslur, sem ákvarðaðar eru í fjárlögum, hafa ekki verið auknar undanfarin ár.

Þannig mun reikningur fyrir dreifingu raforku til heimila á hitaveitusvæðum í þéttbýli sem nota 4.000 kWst á ári hækka um 11% eða um 350 krónur á mánuði. Dreifingarkostnaður til heimila í dreifbýli sem eru með niðurgreidda rafhitun og nota 40.000 kWst á ári hækkar um 2.350 krónur á mánuði, eða 21%.

„Við gengisfall krónunnar á árunum 2008 og 2009 urðu öll aðföng dýrari vegna endurnýjunar og reksturs rafdreifikerfa,“ segir í tilkynningunni.

„Erlend lán stórhækkuðu einnig og ekki útlit fyrir að þau lækki í bráð, en slík lán nema um 40% af langtímalánum fyrirtækisins. Þetta varð til þess að RARIK tókst ekki að uppfylla öll ákvæði sumra lánasamninga, sem við það komust í uppnám. Á árinu 2009 var því gripið til verulegs niðurskurðar í rekstrarkostnaði og fjárfestingum m.a. til að ná að uppfylla ákvæði lánasamninga. Nú er ljóst að þessi ákvæði verða uppfyllt vegna ársins 2009 og náðst hefur samkomulag við lánardrottna um lánasamningana.“

Þá kemur fram að ráðstafanir til lækkunar rekstrarkostnaðar sem RARIK hafi gripið til séu meðal annars lækkun launakostnaðar og niðurskurður í aðkeyptri vinnu og þjónustu. Gerðir voru samningar við starfsmenn fyrirtækisins um lækkun á launum eða tekjum og þannig komist hjá uppsögnum starfsmanna. Almenn skerðing launakostnaðar var nálægt 100 milljónir króna, sem samsvarar um 6% af heildarlaunum, mest hjá þeim sem hæst hafa launin. Lækkun annars kostnaðar var samanlagt um 150-200 milljónir króna samkvæmt tilkynningunni.

„Beitt var aðhaldi á öllum sviðum rekstrar og sérstaklega dregið úr fjárfestingum þar sem aðkeypt aðföng og verktakavinna var stór hluti verksins,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt:

„Stjórn RARIK hefur nú samþykkt aðhaldssama rekstraráætlun fyrir árið 2010. Gert er því ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði óbreyttur í krónutölu frá árinu 2008, þegar orkuflutningur og töp í dreifikerfinu eru undanskilin. Það er sami rekstrarkostnaður og gert var ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2009. Þetta samsvarar um 20% lækkun almenns rekstrarkostnaðar á milli áranna 2008 og 2009 á föstu verðlagi og lækkun milli áranna 2009 og 2010 sem nemur verðlagshækkunum. Þessar ráðstafanir ásamt hækkun gjaldskrár tryggja að afkoma fyrirtækisins verði með þeim hætti að ákvæði lánasamninga verði uppfyllt.“