KB banki efnir til morgunverðarfundar um gengi krónunnar fimmtudaginn 9. desember á Nordica Hotel kl. 8. Erindi flytja Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, Ásgeir Jónsson, lektor við Háskóla Íslands og Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðuneytisins. Á fundinum verður kynnt skýrsla Greiningardeildar KB banka um gengisþróun krónunnar og spá næstu 2-3 árin.