Ráðstöfunartekjur meðalheimilis var 533 þúsund krónur á mánuði á árunum 2010 til 2012, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Hagstofunnar á útgjöldum heimilanna . Á sama tíma voru neysluútgjöldin 476 þúsund krónur á mánuði. Það er um 7,3% aukning á milli áranna 2009 til 2011. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 5,2% og hafa heimilisútgjöld aukist um 2% að teknu tilliti til verðbreytinga.

Hagstofan segir ráðstöfunartekjur flestra hópa hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali 89% af ráðstöfunartekjur. Á hverju heimili búa 2,4 einstaklingar, samkvæmt Hagstofunni.

Hagstofan segir um rannsóknina að niðurstöðu voru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahóum. Heildarniðurstöður voru bornar saman við útgjaldarannsóknina árið 2009 til 2011. Í úrtaki Hagstofunnar voru 3.565 heimili, 1.772 þeirra tók þátt í rannsókninni og var svörun því 49,7%.