Nánast allar vísitölur í Evrópu hafa lækkað í byrjun dags. Í gærdag lækkuðu markaðir í Bandaríkjunum og í morgun lækkuðu markaðir í Asíu og svo virðist sem sú þróun haldi áfram í Evrópu í dag.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 1,76% þegar þetta er skrifað og OBX vísitalan í Osló hefur lækkað um 1,56%.

FTSE 100 vísitalan í Lundúnum hefur lækkað um 2,06% og DAX vísitalan í Frankfurt hefur lækkað um 2,53%.