Hlutbréf í Evrópu lækkuðu eftir að í ljós kom að hagnaður BNP Paribas, stærsta banka í Frakklandi, var undir væntingu og að Goldman Sachs lækkaði afkomuspá sína fyrir bifreiðaframleiðendur í álfunni.

FTSE 100 í London lækkaði um 0,8%, DAX í Þýskalandi lækkaði um 0,3% og CAC40 í Frakklandi lækkaði um 1,4%.