Allar helstu hlutabréfavísitölur féllu í Asíu í nótt vegna frétta um mögulega lækkun Standard & Poor's á lánshæfismati 15 evruríkja. ASX-hlutabréfavísitalan í Ástralíu lækkaði um 1,45%, Nikkei-vísitalan í Japan lækkaði um 1,39 og Sjanghæ í Kína féll einniig en þó minnt eða um 0,5%. Þegar klukkutími lifði af viðskiptum hafði Hang Seng vísitlan í Hong Kong lækkað um tæplega 1,4%.