Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,62% í dag og endaði í 1,800 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,23% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa HB Granda, eða um 1,59% í 228 milljóna króna viðskiptum, en verð á hvert bréf er þá 38,35 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Regins, eða um 1,21% í 132 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Regins nemur þá 20,9 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 1,01% í 209 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 34,45 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 1,69% í 37 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 232,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag voru tæpar 848 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3,1 milljarður króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 0,8 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 2,7 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,3 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,4 milljarða króna viðskiptum.