Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,31% í dag og endaði í 1,885 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,28% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Nýherja, eða um 1,76% í viðskiptum sem hljóða upp á 101 milljón króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 17,3 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,47% í 129 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Icelandair Group er þá 37,38 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Eimskips um 0,43% í 355 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Eimskips er þá 230 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Reita í dag, eða um 0,59% í viðskiptum sem hljóða upp á  309 milljónir króna. Verð á hvert bréf er þá 84,6 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 2,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,4% í dag í 2,0 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 3,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 2,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 1,1 milljarða króna viðskiptum.