Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,35% í dag og endaði í 1,786 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 5,02% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa N1, eða um 1,60% í viðskiptum sem hljóða upp á 250 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 54 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Vodafone, eða um 0,66% í 111 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 45,70 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair um 1,15% í milljarðs króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair Group er þá 34,45 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa TM um 0,43% í 94 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 22,9 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega tveir milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,6% í dag í 6,1 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 5,5 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,3% í 1,6 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,4% í 3,9 milljarða króna viðskiptum.