Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,48% í dag og endaði í 1,828 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,75% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Reita, eða um 0,42% í viðskiptum sem hljóða upp á 159 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 84,05 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa N1, eða um 0,17% í 122 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf N1 nemur þá 57,5 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,97% í 1,2 milljarða króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er þá 35,55 krónur. Einnig lækkaði gengi bréfa Marel um 0,42% í 483 milljóna króna viðskiptum. Verð á hlut er þá 235,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag voru tæpar 2,4 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,4 milljarðar króna.