Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,30% í dag og endaði í 1881,01 stigi. Þá hefur vísitalan hækkað um 0,03% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eimskips, eða um 1,27% í viðskiptum sem hljóða upp á 437 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 239 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Haga, eða um 0,52% í 26 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Haga er þá 48,5 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,46% í 348 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair Group er 37,63 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Marel um 0,52% í viðskiptum upp á 55 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 238,25 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 303 milljónir króna.