Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,42% í dag og endaði í 1865,05 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 0,82% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 0,45% í viðskiptum sem hljóða upp á 656 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 49 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Eimskips, eða um 1,86% í rúmlega 183,7 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Eimskips er þá 246 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,72% í viðskiptum sem hljóða upp á 185 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 34,65 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Vodafone um 1,35% í viðskiptum upp á 173 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar 43,7 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 1,69 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 5,4 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3% í dag í 1,7 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði lítillega í dag í 5,4 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,7 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,2% í 4,7 milljarða króna viðskiptum.