Nær allar tölur í Kauphöllinni hafa verið rauðar það sem af er degi.

Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hefur lækkað um 2,25% þegar þessi frétt er skrifuð. Mest hefur gengi bréfa Icelandair Group lækkað, eða um 4,04% í viðskiptum sem hljóða uppá 850 milljónir króna það sem af er degi.

Auk þessa hafa bréf Marel einnig lækkað um 1,93% í viðskiptum sem hljóða upp á 168 milljónir króna, þegar fréttin er skrifuð.