Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,34% í dag og endaði í 1804,07 stigi. Þá hefur vísitalan lækkað um 4,06% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Reita, eða um 1,08% í viðskiptum sem hljóða upp á 709 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 84 krónum á hlut. Gengi bréfa Eimskips hækkaði þá einnig, eða um 1,36% í rúmlega 185 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 241,75 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,95% í viðskiptum sem hljóða upp á 625 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32,75 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 3,1 milljarður króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,3 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 3,2 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA stóð í stað í dag í 3,4 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði lítillega í 0,5 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði lítillega í 3 milljarða króna viðskiptum.