Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkar um 1,24% í viðskiptum dagsins og endar því í 1.698,22. Aðalvísitala skuldabréfa lækkar einnig um 0,16% og endar í 1.227,59 stigum.

Hlutabréf í öllum félögum á markaði lækkuðu eða héldust í stað.

Bréf Icelandair lækkuðu um 3,16% í 681 milljón króna viðskiptum, sem er mesta lækkun dagsins. Bréf í HB Granda lækka næst mest af úrvalsvísitölufélögum eða um 1,24% í tæplega 127 milljón króna viðskiptum.

Af félögum fyrir utan úrvalsvísitöluna lækkaði Sjóvá í 61 milljón króna viðskiptum og bréf í Eik fasteignafélagi um 0,49% í 148 milljón króna viðskiptum.