Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,69% í viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1819,51 stigi eftir rúmlega 3,2 milljarða viðskipti.

Gengi bréfa TM lækkaði um 2,59% og HB Granda um 2,54% en nokkuð lítil velta var með bréf þessara félaga.

Gengi bréfi N1 hækkaði um 1,14% í 398 milljóna króna viðskiptum og Icelandair Group um 0,22% í 312 milljóna viðskiptum.

Mest velta var í viðskiptum með bréf Reita sem lækkuðu um 1,42% í 896 milljóna króna viðskiptum.

Vísitölur Gamma

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,1% í 7,2 milljarða viðskiptum. Þar lækkaði verðtryggði hluti vísitölunnar um 0,04% meðan sá óverðtryggði hækkaði um 0,25%.