Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,80% í dag og stóð 1.632,63 stigum við lok dags en viðskipti á hlutabréfamarkaði námu ríflega 1,3 milljarði króna. Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,07% og stendur því í 1.363,96 stigum, en viðskipti með skuldabréf námu ríflega 5,8 milljörðum króna.

Aðeins þrjú félög hækkuðu í dag, Nýherji, Eik og Eimskip, öll í óverulegum viðskiptum.

Mest lækkun var á bréfum Marel eða 2,62% í 220 milljón króna viðskiptum en þau standa í 316,00 krónum eftir daginn. Næst mest lækkuðu bréf Skeljungs eða um 1,28% í 177 milljón króna viðskiptum og stóðu þau í 6,96 við lokun markaða.

Mest voru viðsipti með bréf Símans en þau námu 306 milljónum króna. Síminn lækkaði um 0,49% og standa bréf félagsins í 4,06 krónum.

Vísitölur Gamma

Hlutabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,71% í dag í 1,3 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,08% í 0,9 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,14% í 0,4 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,06% í 0,5 milljarða króna viðskiptum.