Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi lækkaði um 0,91% í 2,4 milljarða viðskiptum dagsins, og stendur hún nú í 1.863,09 stigum.

Mest hækkun var á gengi bréfa HB Granda, eða um 1,96% í 47 milljóna króna viðskiptum, og fór gengið upp í 31,15 krónur. Næst mest var hækkunin á gengi bréfa Heimavalla, um 0,81% í 2 milljóna króna viðskiptum.

Gengi annarra félaga í kauphöllinni lækkaði í viðskiptum dagsins.

Mest lækkun var á gengi bréfa Eimskips, eða 2,85% í 34 milljóna króna viðskiptum.

Mestu viðskiptin voru svo eftir sem áður með bréf Marel, eða fyrir 753 milljónir. Næst mestu viðskiptin voru svo með bréf Reita, eða fyrir 242 milljónir króna, en bréf félagsins lækkuðu um 1,34% í viðskiptunum.