Öll skráð félög á Aöðalmarkaði Kauphallarinnar lækkuðu í viðskiptum dagsins nema Heimavellir sem stóðu í stað.

Verð á hlutabréfum í Högum lækkaði mest í viðskiptum dagsins eða um 3% í 224 milljóna króna viðskiptum. Sýn lækkaði næstmest eða um 2,29% í 63 milljóna króna viðskiptum.

Þá lækkaði Arion banki og Eimskip um rétt rúm 2% í 208 milljóna króna og 68 milljóna króna viðskiptum.