Rauður dagur var á markaðnum í dag þar sem flest félög lækkuðu. Afar lítil velta var í kauphöllinni í dag en hún nam aðeins 677 milljónum króna. Reitir var eina félagið sem hækkaði en það hækkaði lítillega um 0,12%.

Mest lækkaði verð á hlutabréfum í í Heimavöllum eða um 1,64%. Næstmest lækkuðu bréf í Hb Granda eða um 1,45%.