Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,53% í dag og endaði í 1819,74 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 3,23% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 1,04% í viðskiptum sem hljóða upp á 87,6 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 48,5 krónum á hlut. Gengi bréfa N1 hækkaði þá einnig, eða um 1,34% í tæplega 34,7 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 68,10 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 1,81% í viðskiptum sem hljóða upp á 304 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 32,60 krónur. Gengi bréfa Regins lækkaði þá einnig, eða um 0,66% í viðskiptum sem hljóða upp á 164 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 22,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 740 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 5,4 milljarðar króna.