Bréf í öllum fyrirtækjum sem skráð eru í Kauphöllinni lækkuðu í dag. Mest lækkuðu bréf í Eimskip, eða um 3,21%. Veltan var líka mest með bréf í Eimskip eða 305 milljónir króna. Næst mest velta var með bréf í Icelandair eða 296 milljónir og lækkuðu bréfin um 1,21%.

Mun minni velta var með bréf í öðrum fyrirtækjum. Össur lækkaði um 2,25% og nam veltan 56 milljónum króna. Tryggingafélögin lækkuðu bæði. TM  lækkaði um 1,98% og var veltan 64 milljónir króna. VÍS lækkaði um 0,86% og var veltan 96 milljónir króna.