Þess eru nokkuð skýr merki að þær verðhækkanir sem einkenndu fasteignamarkaðinn í upphafi síðasta árs séu nú í rénun. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar er bent á að fasteignaverð hefur staðið í stað á undanförnum mánuðum sem kemur fram í því að hratt dregur úr mánaðarlegum hækkunum.

Sömuleiðis telur ráðuneytið að upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu gefi til kynna að markaðurinn sé að róast eftir mjög líflegt tímabil á sl. ári. Þessi þróun kemur fram í vísitölu neysluverðs með tímatöf, þar sem fastteignaaverð er mælt með meðaltali sl. þriggja mánaða. Verði svo, sem nú horfir, að fastteignaverð standi í stað eða hækki lítið héðan í frá, á það eftir að hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu mælda með neysluverðssvísitölunni.

Tólf mánaða hækkun neysluverðsvísitölu í febrúar 2006 um 4,1% var að tveimur þriðju hlutum tilkomin vegna hækkunar fasteignaaverðs.
Að hússnæði undanskildu hækkaði vísitala neysluverðs um 1,5% á sama tíma. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur tólf mánaða hækkun fastteignaaverðs minnnkað úr 40% í ágúst 2005 í 25% í janúar 2006. Þriggja mánaða breyting fasteignaverðs hefur minnkað úr um 13% í mars 2005 í 3% og mánaðarleg breyting hefur minnkað úr 6% í janúar 2005 í 0,5% í janúar 2006.